Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Of gott til að vera satt

Ja nú er það heitt!     Það er ekki hægt að segja annað en að góða veðrið hafi komið með stæl, þegar það kom.  Ég ákvað í morgun að best væri að eyða deginum úti í svona góðu veðri.  Við Ragnar fórum með Sigurrós, Rögnu Björk, mömmu og Hauki á Árbæjarsafn að spóka okkur.  Þar var múgur og margmenni, enda frítt inn í dag vegna veðurs.  Við vorum reyndar líka glöð að komast heim og kæla okkur aðeins niður, það er stundum erfitt að vera lengi úti í miklum hita.  Það er greinilega erfitt að gera manni til hæfisSmile

 Vona að þið njótið veðurblíðunnar

kv

Guðbjörg o.


Þingvellir/Selfoss, here we come...

Eftir rokið í gær er skollið á logn og hiti.  Ég skellti mér í ræktina í morgun meðan Magnús og Ragnar busluðu í sundlauginni.  Skellti mér svo aðeins í pottinn á eftir og smá sólbað í leiðinni.  Bara yndislegt....... 

Nú er ætlunin að skella sér á örlítinn rúnt austur yfir fjall, með viðkomu á Þingvöllum.  Þar er meiningin að kaupa ís og spóka sig aðeins, halda svo á Selfoss og kíkja kannski í heimsóknir.  Bjarki er búinn að vera hjá okkur um helgina svo við keyrum hann líka heim í leiðinni.  Set kannski inn nokkrar myndir þegar heim kemur, verð nú að fara að taka mig á í þeim efnum (er bara svo mikill klaufi að mér tekst alltaf að klúðra þeim einhvervegin).  Eigið góðan dag í dag gott fólk

kveðja til allra

Guðbjörg


Er hægt að drepast úr leti?????

Það er ótrúlegt hvað maður getur verið andlaus stundum.  Var í ótrúlegu stuði um daginn þegar sólin og góða veðrið var ríkjandi, en nú nenni ég varla neinu.  Merkilegt hvað veðurfar hefur áhrif á orkustöðvarnar.  Stóru börnin voru að koma heim frá Egilsstöðum um helgina og Bjarki var hjá okkur svo það var mikið stuð og fjör.  Við stórfjölskyldan fórum í afmæli til Sigurrósar á laugardaginn og fengum dýrindis veitingar.  Síðan hefur húsmóðirin verið að springa úr leti.

Þarf eiginlega að skella mér í að flísaleggja smá í eldhúsinu, en er einhvernvegin ekki að koma mér í það.  Kannski er ég bara komin með ógeð á flísalögnumSmile 

Annars eru Oddur og Karlotta að fara aftur austur á föstudaginn, til að fara á tónleika á Borgarfirði Eystri.  Þetta eru árlegir tónleikar sem fengið hafa nafnið ,,Bræðslan".  Núna í ár mun Magni frændi þeirra syngja nokkur lög auk þess sem ég held að Emilía Torrini mæti og margir fleiri tónlistarmenn.  Þetta er frábært framtak hjá Þeim Vidda og Heiðari að brydda upp á þessum tónleikum og festa þá í sessi.  Krakkarnir ætla að koma heim fyrir verslunarmannahelgi því stefnum við að því að fara í Sælukot á útihátíð fjölskyldunnar og aldrei að vita nema við verðum skemmtileg við börnin og nennum að gista í tjaldi (a.m.k. svo eina nótt) en það fer eftir veðri.

Ég byrja svo að vinna 18 ágúst á nýjum vinnustað og er bara orðin ansi spennt.  Er að vona að Ragnar geti verið búinn í aðlögun á leikskóla fyrir þann tíma.  Hann er greinilega orðinn leiður á að vera einn heima með mömmu sinni í sumar því hann er farinn að syngja í tíma og ótíma ,,Í leikskóla er gaman, þar leika allir saman"  Ég skil alveg sneiðinaWhistling

Kveðja til ykkar allra

Guðbjörg


Hún systa mín litla......

er ekki lengur lítil, heldur 29 ára gömul í dag.  Til hamingju með daginn Sigurrós mín !

Þegar ég vissi að ég ætti að eignast systkini vildi ég (7 ára gömul og einbirni) endilega eignast stóran bróðir, því vinkona mín átti einn slíkan sem oft kom sér vel.  Í staðin fékk ég þessa líka yndislegu, hugmynda- og hæfileikaríku litlu systir, sem mér þykir óskaplega vænt um.  Ég held að mér sé óhætt að segja að við systur höfum alltaf átt gott samband og í dag erum við duglegar að hittast og bralla eitthvað saman. 

Guðbjörg


MAMMA MÍA

Ég fór að sjá Mamma Mia í bíó gær með mömmu og Sigurrós.  Það var í einu orði sagt frábært.  Stemningin í bíó var frábær, sennilega svona 90% konur og þær voru allar að ,,fíla myndina í botn"  í lok myndar var klappað og stappað.

Þessi mynd byggir á ABBA lögunum og það voru mörg augnablik sem mann langaði að standa upp og bresta í söng og dans, þar sem maður sat í salnum.  Leikararnir eru bara flottir, en ég verð að viðurkenna að Pierce Brosnan missti pínulítið ,,coolið" þegar hann fór að syngja.  Ekki viss um að ég geti alveg séð hann í réttu ljósi sem töffara eftir að hafa verið svona ,,mjúkur" maður.

Ég er ákveðin í að kaupa mér diskinn með lögunum úr myndinni og syngja bara hástöfum heima (nágrönnum mínum til ómældrar ánægju)!  Mæli með að allar konur sjái þessa mynd, hún er líka frábær fyrir vinkvennahópa að fara saman.

 ABBA kveðjur til ykkar

Guðbjörg


Leikskólamál

Eins og þið vitið fluttum við fjölskyldan í Kópavoginn þann 1.júní.  Um leið og við höfðum gert kauptilboð sótti ég um leikskólapláss fyrir Ragnar Fannberg hjá Kópavogsbæ, frá og með 1. ágúst n.k.  Þegar við vorum flutt, hringdi ég í leikskólafulltrúa til að kanna stöðuna og hún sagði að hann kæmist pottþétt inn á leikskóla, ég myndi fá bréf um málið fljótlega.  Það stóð heima og bréfið um að Ragnar kæmist inn á leikskóla kom´nokkrum dögum síðar.  Í bréfinu stóð að Ragnar hefði fengið pláss og að ég ætti að staðfesta það við leikskólastjóra viðkomandi leikskóla.  Ég var himinlifandi og hafði strax samband.  Leikskólastjórinn var hins vegar mjög loðinn í tilsvörum og sagðist ekki lofa neinu, barnið kæmist a.m.k. ekki inn í leikskólann 1. ágúst og sennilega ekki fyrr en í fyrsta lagi í september og kannski ekki þá!  Leikskólinn ætti við vanda að stríða í starfsmannamálum og verið væri að auglýsa grimmt eftir fólki.  Nú voru góð ráð dýr......  Ég mátti hringja aftur í byrjun júlí.

Þegar ég hringdi aftur í byrjun júlí var alveg sama sagan og síðast, hún gat engu lofað mér og ekkert sagt.  Þar sem ég á að byrja að vinna á nýjum vinnustað 18. ágúst fannst mér þetta ekki gott mál.  Ekki gæti ég hringt og tilkynnt forföll fram í september, eða lengur, vegna þess að ég fengi ekki pössun fyrir barnið mitt fyrr.  Ég ákvað að hafa aftur samband við leikskólafulltrúann hjá Kópavogsbæ og sagði henni hvernig í málinu lægi.  Þar sem það eru tveir leikskólar hér í hverfinu, báðir í um 5 mín. fjarlægð frá húsinu okkar, bauðst hún til að kanna málið á hinum leikskólanum.  Þegar hún hringdi aftur sagðist hún hafa rætt við leikskólastjórann á hinum leikskólanum og ég mætti hafa samband þangað í lok júlí og hann kæmist pottþétt inn þar og jafnvel fljótlega eftir fríið.

 Ég skil ekki alveg hvers vegna bréf um staðfestingu á leikskólavist eru send út til fólks,án þess að börnin séu komin með fasta og dagsetta vistun.  En ég vil hrósa leikskólafulltrúanum fyrir að vera mjög liðleg, taka erindi mínu vel og sýna mér skilning auk þess að gera allt sem hún gat til að liðka fyrir málinu.   Nú hringi ég í lok júlí og ætla rétt að vona að ég fá gleðifréttir, enda held ég að sonur minn verði orðinn þreyttur á að leika ,,bara" við mömmu í allt sumar, þó hún sé ofsalega skemmtilegWhistling

Kveðja til ykkar allra

Guðbjörg


Alger sæla : )

Hvað er annað hægt en að njóta lífsins þegar sólin skín og það í marga daga í röð!

Sit hér á svölunum mínum og sleiki sólina meðan yngsti maður sefur miðdegislúrinn.  Við vorum svo dugleg í morgun, drifum okkur á hjólinu niður í Salalaug þar sem við hittum mömmu.  Ragnar fékk að stinga sér með henni heim meðan ég fór í ræktina.  Sótti svo kappann til ömmu þar sem hann var í góðu yfirlæti að leika við afa og ætlaði að neita að fara heim.  Eftir nokkrar fortölur fékkst kappinn út og á hjólið.  Leiðin heim var talsvert erfið, öll upp í móti og lærin verulega lúin eftir ræktina, en allt hafðist þetta nú fyrir rest.  Eftir hádegið er stefnan tekin í sund með mömmu, Sigurrós og Rögnu Björk og örugglega smá sólbað í leiðinni.

Annars er ég alltaf að verða ánægðari með þessa ákvörðun okkar að flytja í Kópavoginn, þó það taki smá tíma að aðlagast nýjum stað.  Íbúðin okkar er svo björt og skemmtileg og fínt útsýni yfir Hellisheiði og Heiðmörkina.  Hér eru líka göngustígar um allt og aldrei þarf að fara yfir götu, því allsstaðar eru undirgöng, alger snilld.  Ég verð afskaplega lítið vör við nágranna mína í húsinu og sé ekki mikið af börnum úti að leika, en vona að það fari að breytast því stóru börnin þurfa að fara að finna sér vini.  Annars eru þau í rólegheitunum á Egilsstöðum með pabba sínum og verða örugglega viku í viðbót ef allt gengur vel.  Við Ragnar erum því bara í algeru afslappelsi hér á daginn (fyrir utan að vera að klára að koma okkur fyrir) og njótum þess alveg í botn að vera til.  Magnús er rosa duglegur í nýju vinnunni sinni og fær því miður ekki meira frí í sumar en þessar tvær vikur sem við vorum úti. 

Ég ætlaði að vera voða dugleg að skrifa um Danmerkurferðina en ég bendi áhugasömum bara á síðuna hans Magnúsar, því hann er búinn að vera svo duglegur að skrifa.

Sólarkveðjur til ykkar allra

Guðbjörg


Ótrúlega dugleg í dag

Dagurinn var tekinn með trompi í dag.  Við Magnús Már mættum í ræktina kl. 10 í morgun.  Ég fór labbandi með Ragnar Fannberg í Salalaugina í gær og keypti árskort í líkamsrækt (Nautilus) og sund fyrir okkur hjónaleysin.  Í morgun fengum við leiðsögn í gegnum tækin og síðan er markmiðið að mæta a.m.k. þrisvar í vikur í tækin og helst í sund þess á milli.  Aðstaðan í þessari stöð er ótrúlega flott og frábært að geta farið í sund líka eða heita pottinn og gufu, eftir æfingu.

Þegar við komum heim frá því að sækja Ragnar sem dvaldi í góðu yfirlæti hjá afa og ömmu í Fensölunum, voru hendur látnar standa fram úr ermum.  Magnús Már fór að þrífa bílinn að innan og ég kláraði að mála það sem eftir var í stofunni og eldhúsinu.  Nú er loks allri málningarvinnu lokið, veiii.  Ég var auðvitað svo spennt að fara að setja upp myndir og dúllast aðeins, að ég varð að skella mér í það líka.  Setti upp hillur hjá Karlottu og ýmislegt fleira.  Ég er nefnilega farin að þrá að sjá fyrir endann á þessu ,,flutningsferli" og losna við restina af kössunum og dótaríinu sem flækist fyrir mér.  Ég var ekkert smá montin með mig eftir dugnaðinn, en eftir á að hugsa var þetta kannski ekki það skynsamlegasta.  Vona allavega að ég komist út úr rúminu á morgun því ég hef ekki farið í ræktina ansi lengi og verð pottþétt með góðan skammt af harðsperrum.  Það er góða við þær er hins vegar að maður finnur svo vel að maður hefur verið að reyna á líkamann, sem er yndislegt.

Á morgun er planið að hafa sól og blíðu og fara út í náttúruna hér í nágrenninu og eyða deginum utan dyra í afslöppun.  Eins gott að veðurguðirnir séu með þetta á hreinu.

 Kveðja til ykkar allra

Guðbjörg


Fjölskylda á faraldsfæti

Heil og sæl

Margt hefur drifið á daga fjölskyldunnar síðasta mánuðinn.  Þann 1. júní s.l. fluttumst við búferlum, frá Selfossi og í Kópavoginn.  Það voru margir yndislegir vinir og ættingjar sem lögðu okkur lið og gerðu það að verkum að flutningurinn gekk upp og fá þeir hér enn og aftur bestu þakkir.  Það hafði verið leigjandi í íbúðinni sem við vorum að kaupa og hún átti að vera farin út á laugardeginum 30. maí.  En þegar við komum með flutningabílinn okkar kl. 13:20 á sunnudeginum kom í ljós að mín var enn að tína út dótið sitt.  Þannig að við þurftum að láta flutningabílinn okkar (með tikkandi mæli) bíða þar til hún gat sent sinn flutningabíl í burtu.  Þegar bílinn loksins fór kom í ljós að þá átti hún eftir að tæma geymsluna sína!  Við brugðum á það ráð að setja bara allt dótið upp í íbúð og tína þá niður í geymsluna seinna.  Auðvitað var íbúðin algerlega óþrifin svo ærið verkefni var fyrir höndum.  Magnús Már fór í nýju vinnuna sína næsta dag og ég brunaði austur á Selfoss að taka foreldraviðtöl og klára frágang í vinnunni.  Tíminn fram að 14. júní fór í það að byrja að koma sér fyrir.  Við ætluðum að mála allt og ég og Haukur byrjuðum á að mála svefnherbergin og sjónvarpsholið svo hægt væri að gera þau herbergi klár.  Það á enn eftir að mála stofuna, hengja upp ýmis ljós, setja segil á baðið og taka upp úr fullt af kössum.  Það er nefnilega þannig að manni verður ekkert rosalega mikið úr verki þegar maður er með 2 ára gamlan verkstjóra sér til aðstoðar!!

Þann 14. júní lagði fjölskyldan svo land undir fót og skellti sér í löngu planaða ferð til Danaveldis.  Oddur minn var orðinn svo spenntur að hann var eiginlega kominn á yfirsnúning í flugstöðinni og var mjög iðinn við að elta litla bróðir sinn um allt og hleypa fjöri í liðið.  Allt fór þó í rólegra horf þegar við fórum um borð í vélina og gekk flugferðin ljómandi vel.  Ragnari fannst þetta allt saman mjög spennandi og spurði á mínútu fresti ,,hvað heitir þetta" og ,,hvað er þetta"?  Við lentum í Billund um hálf tíu að dönskum tíma og þá tók við klukkutíma bið eftir bílaleigubíl, því 10 - 11 íslenskar fjölskyldur þurftu að fá bíl og ein dönsk blómarós að afgreiða : )  Karlotta var dugleg að keyra Ragnar um í kerrunni meðan við biðum og loks gátum við lagt af stað í sumarhúsið sem við áttum pantað.  Þökk sé þeirri yndislegu uppfinningu GPS og mínum yndislegu tengdaforeldrum, sem gáfu Magnúsi það í afmælisgjöf, keyrðum við beint upp að dyrum á húsinu klukkutíma síðar.  Við værum enn að vafra um og leita að húsinu, hefði þess ekki notið við, því leiðin var ekkert augljós svona í náttmyrkrinu.  Húsið sem við pöntuðum var alveg frábært og stóðst fullkomlega allar væntingar okkar (nema hvað rúmin voru mjó og koddarnir vondir : )).

Ég segi ykkur meira frá ferðalaginu í næstu færslu, þið verðið bara að vera þolinmóð elskurnar.  (Þ.e.a.s. þessi eini sem enn nennir að lesa eftir hlé).

Guðbjörg


Loksins nýtt blogg !!!!!

Heil og sæl

Ég var búin að skrifa mjög langan pistil um flutninga fjölskyldunnar og Danmerkurferð o.fl. þega allt hvarf og finnst auðvitað ekki aftur.  Varð svo pirruð að ég endurskrifa hann þegar pirringurinn dvínar og tími gefst.  En við erum sem sagt flutt í Ásakór í Kópavogi og öllum vinum og kunningjum frjálst að líta við í kaffi.

Guðbjörg


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband