Íslenska óperan
26.9.2008 | 20:39
Ég fór í Óperuna á sunnudagskvöldið síðasta að sjá Cavalleria rusticana og Pagliacci í boði tengdaforeldra minna. Þetta eru tvær stuttar, en bráðskemmtilegar óperur. Ég hef aldrei áður komið í þetta óperuhús (gamla bíó) og ég verð að segja að ég dáist að því hvernig þeir fara yfirleitt að því að setja upp óperur á þessu litla sviði. Mikið held ég að allir verði glaðir þegar almennilegt óperuhús rís. Að ég tali nú ekki um sætin, við sátum þó uppi á svölum þar sem eru betri stólar en niðri! Þetta var mikil upplifun og ég var mjög hrifin. Þarna voru margir stórsöngvarar á borð við Sólrúnu Bragadóttur, Jóhann Friðgeir, Tómas Tómasson ofl. En ég verð að segja að Kristján Jóhannsson bar þó höfuð og herðar yfir aðra í sýningunni, auðheyrt að hann er af öðru ,,caliberi" að öllum öðrum ólöstuðum.
kv
Guðbjörg Oddsd.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Eg hef aldrei farið á óperu. Það er eitt af mörgu sem ég ætla að gera þegar ég verð gömul og rík... Allavega rík.
Eigðu góðan dag
Hulla Dan, 29.9.2008 kl. 10:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.